7.8.09

Klessukaka

Fyrir 6

3 dl sykur
3 egg
2 1/2 dl hveiti
3 msk kakó
1 msk vanillusykur
125 g brætt smjör
(ég set líka yfirleitt smá salt)

Þeytið saman sykri og eggjum og hrærið svo þurrefnunum saman við. Hellið bræddu smjörinu út í og hrærið. Hellið deiginu í form sem er ca 24 sm í þvermál og bakið í 150°C heitum ofni í 30-35 mínútur.

1 Comments:

Blogger SigrunSt said...

Glæsilegt Dagný kærar þakkir getum við sjálfar sett inn uppskriftir? geturðu bætt okkur við sem notendum langar mikið að setja inn nokkrar uppskriftir.

11:34 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home