6.10.04

Semi-freddo

Fyrir 12

1 vanillustöng
55 g sykur
4 stór egg, aðskiljið rauðurnar frá hvítunni
500 ml rjómi
salt

Fjarlægið fræin úr vanillustönginni með því að skera hana langsum og skrapa fræin í
burtu úr hvorum helmingi. Þeytið saman vanillufræin, sykurinn og eggjarauðurnar í stórri skál. Þeytið rjómann rækilega í annari skál (passið að ofþeyta hann ekki). Stífþeytið síðan eggjahvíturnar með ögn af salti í þriðju skálinni þar til þær standa eftir í toppnum. Bætið nú rjómanum og eggjahvítunum saman við eggjarauðublönduna. Blandið þessu varlega saman. Hellið blöndunni strax ofan í mót. Setjið plastfilmu yfir mótið og frystið þangað til bera á eftirréttinn fram.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home