6.10.04

Ostakaka með passíuávöxtum

125 g rjómaostur
125 g Mascarponeostur
250 g hvítt súkkulaði
1 peli rjómi
80 g sykur

Súkkulaðið er brætt í vatnsbaði og rjóminn hálfþeyttur.
Svo er öllu blandað varlega saman.
Gott er að hafa ostana við stofuhita og hræra þeim aðeins saman fyrst.

100 g hafrakex
50 g smjörlíki

Kexið er mulið niður, smjörið brætt.
Þetta er svo blandað saman og þrýst í botn á ca 20 cm formi.
Blöndunni er hellt yfir og þetta kælt.

Borið fram með vel þroskuðum passíuávöxtum.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home