21.10.04

Heitfeng matarsúpa

Fyrir 6

1 laukur
2 msk olía
1 tsk basilíka
1 dós niðursoðnir tómatar (Italian style herbs)
1 l vatn
1 tsk kjötkraftur
1 tsk grænmetiskraftur
1 msk eldpiparsósa (chilisósa)
2 msk tómatsósa
100 g gulrætur
200 g blómkál eða spergilkál
½ l matreiðslurjómi
80 g spagettí eða pasta
1 dl kalt vatn
3 msk hveiti
salt
svartur pipar

Saxið laukinn og látið hann krauma í olíu.
Stráið basilíku yfir og látið krauma með.
Bætið tómötum, vatni, krafti, eldpiparsósu og tómatsósu út í og sjóðið við vægan hita í 5 mín. Gulrótum, litlum eða í sneiðum, ásamt blómkáli bætt út í og látið sjóða í u.þ.b. 7 mín.
Bætið matreiðslurjóma og spagettí út í og sjóðið í 5 mín.
Hristið hveitijafning og jafnið út í súpuna.
Sjóðið í 2-3 mín. Kryddið með salti og pipar.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home