19.10.04

Gerlaus pítsa

1 bolli hveiti
½ bolli súrmjólk (eða ab-mjólk)
1 msk olía
1 tsk lyftiduft
¼ tsk salt

Setjið allt hráefnið saman í skál, hrærið og hnoðið svo.
Fletjið út á plötu og setjið annað hvort hefðbundið pitsaálegg ofan á eða gerið svona basiliku-tómatapítsu. Ef þið viljið gera svoleiðis þá bara saxið þið ca eitt búnt af basiliku, blandið saman við extra virgin ólívuolíu og smyrjið á botninn. Svo skerið þið nokkra tómata og eina ferska mozzarellakúlu niður í sneiðar og skellið ofan á og stráið svo smá sjávarsalti yfir.
Sett í 200°C heitan ofn og látið vera í honum þar til osturinn er bráðnaður.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home